Kona sem var að fljúga með eiginmanni og börnum er komin á svartan lista hjá flugmálayfirvöldum í Ukraínu fyrir að opna neyðarútgang og fara út á væng. Konunni var heitt svo hún ákvað að taka málin í eigin hendur og kæla sig.
Atvikið átti sér stað í farþegaflugvél sem var nýlent í Kænugarði í Úkraínu frá Antalya í Tyrklandi. Myndskeið af konunni hefur farið eins og eldur í sinu um netið þar sem hún sést fara af vængnum og aftur inn í flugvélina.
„Flugvélin lenti og næstum því allir farþegar fóru út. Hún gekk næstum því alla leið aftast úr flugvélinni í átt að neyðarútganginum, opnaði dyrnar og fór út,“ sagði farþegi að því er fram kemur á vef The Sun. Farþeginn sagði að börnin hefðu bent hissa á móður sína á vængnum þegar út var komið.
Flugmálayfirvöld í Ukraínu staðfestu atvikið og sögðu konuna komna á svartan lista fyrir hegðun sína.
View this post on InstagramA post shared by ПРО БОРИСПІЛЬ • НОВИНИ • ПОДІЇ (@boryspilchany) on Aug 31, 2020 at 11:23am PDT