Miðar í 7 tíma útsýnisflug seldust upp

Sjö klukkustunda ferðalag án áfangastaðar hljómar vel í eyrum margra.
Sjö klukkustunda ferðalag án áfangastaðar hljómar vel í eyrum margra. Ljósmynd/Pexels

Útsýnisflug Qantas frá Ástralíu seldist upp á aðeins 10 mínútum samkvæmt tilkynningu frá flugfélaginu. „Þetta er örugglega það flug sem hefur selst hraðast upp í sögu Qantas,“ sagði Alan Joyce, framkvæmdastjóri flugfélagsins. 

Um er að ræða sjö tíma flugferð með engum áfangastað heldur verður floginn hringur yfir kóralrifin miklu og fleiri áhugaverða staði í kring um Ástralíu. Flogið verður á Boeing 787 Dreamliner-flugvél Qantas sem venjulega er notið í löngum flugferðum á milli heimsálfa. 

Aðeins 134 miðar voru í boði og kostuðu allt frá 566 til 2.734 bandaríkjadala. Útsýnisflugið er á dagskrá hinn 10. október næstkomandi. 

„Fólk saknar þess greinilega að ferðast og upplifunarinnar að fljúga. Ef það er eftirspurn eftir því munum við klárlega skoða að fara í fleiri svona útsýnisferðir á meðan við bíðum eftir að landamæri opnist,“ sagði Joyce í viðtali við CNN Travel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert