Uppáhaldsbar Íslendinga á Tenerife opnaður aftur á morgun

Herdís Hrönn og eiginmaður hennar, Sævar Lúðvíksson, reka Nostalgia bar.
Herdís Hrönn og eiginmaður hennar, Sævar Lúðvíksson, reka Nostalgia bar. Mynd/Herdís Hrönn Árnadóttir

Uppáhaldsbar Íslendinga á eyjunni Tenerife sem er við Afríkustrendur verður opnaður aftur á morgun 8. október.

Barnum Nostalgíu var lokað í apríl vegna veirunnar og fóru eigendur hans, Her­dís Hrönn Árna­dótt­ir og sam­býl­ismaður henn­ar Sæv­ar Lúðvíks­son, heim til Íslands í sumar.

Nú eru þau hins vegar komin aftur út og ætla að opna barinn með trompi með því að sýna leikinn Ísland-Rúmenía annað kvöld kl. 19.45.

Einvalaliðið sem fékk að finna til tevatnsins bak við barborðið …
Einvalaliðið sem fékk að finna til tevatnsins bak við barborðið á gamlárskvöld, Herdís Hrönn Árnadóttir, Hildur Ýr Aðalsteinsdóttir, dóttir Herdísar, og Sævar Lúðvíksson. Herdís og Sævar hafa rekið Íslendingabarinn Nostalgia á Tenerife síðan 2016 og eru orðin það rótgróin í Íslendingasamfélaginu að Herdís situr yfir íslenskum nemendum í prófum á barnum og kvennaklósettið var kjörklefi fyrir alþingiskosningarnar 2017. mbl.is/Atli Steinn Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert