Bestu flugfélög heims árið 2020

Singapore Airlines þykir besta flufélag í heimi.
Singapore Airlines þykir besta flufélag í heimi. AFP

Fólk hefur almennt flogið minna árið 2020 en árin á undan. Þrátt fyrir það völdu lesendur ferðatímaritsins Condé Nast Traveller bestu flugfélög í heimi árið 2020 með því að gefa þeim einkunn. Annars vegar voru bestu flugfélögin í Bretlandi valin, hins vegar stóð valið um besta flugfélagið utan Bretlands. 

Hér má sjá lista yfir 15 bestu flugfélög í heiminum samkvæmt listanum. Flugfélögin eru í öfugri röð en flugfélagið sem þykir best er Singapore Airlines. 

15. Virgin Atlantic með 88,31 stig. 
14. Virgin Australia Airlines með 88,73 stig. 
13. Austrian Airlines með 88,84 stig. 
12. JAL (Japan Airlines) með 88,94 stig. 
11. Garuda Indonesia með 89.10 stig. 
10. EVA Air með 89,55 stig. 
9. Turkish Airlines með 89,61 stig. 
8. Aegean Airlines með 90,01 stig. 
7. SriLankan Airlines með 90,54 stig. 
6. JetBlue Airways með 90,81 stig. 
5. Qantas með 90,94 stig. 
4. Air New Zealand með 91.38 stig. 
3. Qatar Airways með 91,49 stig. 
2. Emirates með 91,99 stig. 
1. Singapore Airlines með 92,61 stig.

Fjögur bestu flugfélög í Bretlandi í öfugri röð. 

4. EasyJey með 59,95 stig. 
3. British Airways með 75,98 stig. 
2. Virgin Atlantic með 88,31 stig. 
1. JET2 með 91,11 stig. 

Betri sætin í vélum Singapore Airlines eru góð.
Betri sætin í vélum Singapore Airlines eru góð. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert