Vissir þú þetta um Kanaríeyjar?

Kanaríeyjar eru þekktastar fyrir strendurnar.
Kanaríeyjar eru þekktastar fyrir strendurnar. AFP

Á meðan færri en vilja ferðast til Kanaríeyja er hægt að láta sig dreyma um eyjarnar og horfa á kvikmyndir sem teknar voru upp þar. Spænsku eyjarnar eru ekki bara vinsælar á meðal fólks sem vill sól og milt veður allan ársins hring. Margar vinsælar kvikmyndir hafa einnig verið teknar upp á eyjunum. 

Stjörnustríðmynd, Jason Bourne og Fast & Furious-mynd eru meðal þeirra hollywoodmynda sem hafa verið teknar upp á eyjunum. Ástæða þess að kvikmyndaverin sækja í að mynda á Kanaríeyjum er ekki bara hiti og fallegt umhverfi heldur einnig há endurgreiðsla að því er fram kemur á vef The Sun

Vissir þú að þessar myndir voru teknar upp á eyjunum?

Tenerife

Clash of the Titans
Fast & Furious 6
Apaplánetan
Jason Bourne

Gran Canaria

Wonderful Life
Fast & Furious 6
Allied
The Witcher

Fuerteventura

Wonder Woman 
Solo: A Star Wars Story
The Dictator
The Eternals
Exodus

Fast & Furious 6 var tekin upp á Tenerife.
Fast & Furious 6 var tekin upp á Tenerife.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert