Ferðagjöfin getur nýst sem jólagjöf

Það má lauma Ferðagjöfinni í pakkann hjá þeim sem eru …
Það má lauma Ferðagjöfinni í pakkann hjá þeim sem eru duglegir að ferðast um landið. mbl.is/Colourbox

Fjölmargir Íslendingar eiga eftir að nota Ferðagjöfina sína, fimm þúsund króna ferðagjöf stjórnvalda til landsmanna. Ferðagjöfin átti að renna út um áramótin en ekki er ljóst hvort hægt verður að nota gjöfina eftir áramótin.

Það má nýta gjöfina til að kaupa alls konar afþreyingu hér á landi, einnig má flytja hana yfir á annað fólk. Ef hún verður framlengd opnast betri möguleiki á að gefa gjöfina öðrum í jólagjöf. 

Allir eru hvattir til að nýta gjöfina eða gefa hana áfram. Hver einstaklingur getur þó að hámarki nýtt 15 ferðagjafir. Möguleiki er á að gefa ferðagjöfina áfram í smáforritinu Ferðagjöf eða beint af Island.is.

Nánari upplýsingar má finna um ferðagjöfina hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert