Gripinn glóðvolgur með nýrri á leið í frí

Brian Austin Green fór í ferðalag á jóladag. Ætli hann …
Brian Austin Green fór í ferðalag á jóladag. Ætli hann njóti þess að vera á sundskýlunni eins og á þessari mynd frá því í haust? Skjáskot/Instagram

Leikarinn Brian Austin Green er kominn með nýja kærustu eftir skilanð við leikkonuna Megan Fox fyrr á árinu. Green var myndaður á flugvellinum í Los Angeles á jóladag með dansaranum Shörnu Burgess. 

Á myndum sem birtust á vef Daily Mail má sjá hinn 47 ára gamla Beverly Hills 90210-leikara með Burgess sem er þekkt fyrir að dansa í þáttunum Dancing With The Stars. Parið lét vel hvort að öðru á fámennum flugvellinum en ekki er vitað hvert för þeirra var heitið.

Hin 35 ára gamla Burgess sagði í viðtali við Us Weekly í byrjun desember að hún væri byrjuð að hitta nýjan mann. Hún var ánægð með að hafa hitt loksins mann eftir mörg stefnumót í gegnum samskiptaforrit í kórónuveirufaraldrinum. Líklega var maðurinn sem hún talaði um Brian Austin Green. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert