Mest lesnu ferðafréttir ársins 2020

Húsbílar og Anna Kristjáns voru meðal vinsælustu fréttaefna á ferðavefnum …
Húsbílar og Anna Kristjáns voru meðal vinsælustu fréttaefna á ferðavefnum árið 2020. Samsett mynd

Árið 2020 fer í sögubækurnar fyrir margra hluta sakir og meðal annars vegna þess að það var mjög erfitt að ferðast á þessu ári. Árið byrjaði vel og stefndi í gjöfult ár fyrir ferðalanga þessa heims. Kórónuveiran setti svo heldur betur mark sitt á ferðalög. Þótt fæstir hafi farið til útlanda frá því í mars á þessu ári var fólk duglegt að ferðast um Ísland. 

Lúxusvillur í Grímsnesi.
Lúxusvillur í Grímsnesi.

Mest lesna frétt ferðavefsins á árinu er um lúxusvillurnar sem systurnar Signý og Sigyn eiga í Grímsnesinu. 

Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife.
Anna Kristjánsdóttir býr á Tenerife.

Fyrrverandi vélstjórinn Anna Kristjánsdóttir flutti til Tenerife haustið 2019 og skrifar pistla á hverjum degi á facebooksíðu sinni. Pistill Önnu þegar hún hafði þraukað sex mánuði í paradís, eins og hún kallar Tenerife, vakti sannarlega mikla athygli.

George Clooney kom til Íslands í fyrra.
George Clooney kom til Íslands í fyrra. AFP

Það er alltaf fréttnæmt þegar stórstjörnur koma hingað til lands. Leikarinn George Clooney kom hingað í október í fyrra og lenti heldur betur í slæmu veðri. Hann segir frá því að hann hafi upplifað 40 stiga frost í 31 metra á sekúndu. 

Tenerife var mikið til umfjöllunar árið 2020.
Tenerife var mikið til umfjöllunar árið 2020. AFP

Tenerife hefur verið vinsælt umfjöllunarefni á árinu enda margir Íslendingar búsettir þar og margir Íslendingar sem elska að sækja eyjuna heim. Fjórða mest lesna frétt ferðavefsins er slæmar fréttir frá Tenerife þegar fyrsta kórónuveirusmitið greindist á eyjunni. 

Húsbílar voru vinsælir árið 2020. Ekki hjá Jónínu Ben samt.
Húsbílar voru vinsælir árið 2020. Ekki hjá Jónínu Ben samt. Ljósmynd/Unsplash/Damon On Road

Húsbílar voru fyrirferðarmiklir í umræðunni um ferðalög sumarsins enda ófáir sem annaðhvort keyptu sér húsbíl eða leigðu. Íþróttafræðingurinn Jónína Benediktsdóttir var ekki á þeim buxunum að leigja sér húsbíl og sagðist hreinlega vorkenna fólki í húsbílum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert