Flutningabíll festist undir flugvél

Bílstjórinn bakkaði óvart undir lendingabúnað vélarinnar.
Bílstjórinn bakkaði óvart undir lendingabúnað vélarinnar. Ljósmynd/Twitter

Flutningabíll festist undir flugvél Wizz Air í Gdansk í Póllandi á dögunum. Verið var að undirbúa vélina fyrir brottför til Svíþjóðar. 

Bíllinn festist undir vélinni þegar hann bakkaði óvart undir lendingarbúnað vélarinnar samkvæmt pólska miðlinum Trojmiasto

Engan sakaði í slysinu en engir farþegar voru um borð í vélinni. Bílstjórinn slapp einnig ómeiddur.

Bílstjórinn slapp ómeiddur.
Bílstjórinn slapp ómeiddur. Ljósmynd/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert