Tiktokstjörnur gagnrýndar fyrir ferðalög

Charli D´Amelio
Charli D´Amelio Skjáskot/Instagram

Charli og Dixie D'Amelio voru harðlega gagnrýndar á samfélagsmiðlum fyrir að hafa varið áramótunum á Bahamaeyjum. Pabbi þeirra hefur komið fram og sagt að ákvörðunin hafi verið algjörlega foreldranna.

„Það er rangt að kenna Charli um þetta. Þetta var fjölskylduferð. Hún er bara 16 ára þannig að hún fær engu ráðið um hvert fjölskyldan fer í frí. Kennið mér um þetta,“ sagði Marc faðir þeirra og ítrekaði að þau hefðu farið varlega.

„Kórónuveiran er mjög raunveruleg og maður þarf að taka hana alvarlega. Við fórum á stað þar sem gengi veirunnar er mjög lágt. Við gættum fyllsta öryggis til þess að vernda aðra.“

Margar tiktokstjörnur voru á ferðalagi um áramótin og sættu mikilli gagnrýni eins og til dæmis Noah Beck, Chase Hudson, Avani Gredd og Madi Monroe.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert