Fangelsaður fyrir að plata farþega til að sýna brjóst sín

Kona varð fyrir kynferðislegri áreitni af hendi öryggisvarðar á flugvellinum …
Kona varð fyrir kynferðislegri áreitni af hendi öryggisvarðar á flugvellinum í Los Angeles. AFP

Fyrrverandi öryggisstarfsmaður á flugvellinum í Los Angeles var dæmdur í 60 daga fangelsi fyrir að plata konu til að bera á sér brjóstin á flugvellinum. Hinn 23 ára gamli Jon­athon Lomeli fær ekki að starfa sem öryggisvörður í framtíðinni. Hann játaði ekki brot sitt en tók dómnum að því er fram kemur á vef Independent

At­vikið átti sér stað í ör­ygg­is­leit­inni á flug­vell­in­um sumarið 2019. Lomeli sagðist þurfa að að sjá und­ir brjósta­hald­ara konu til þess að tryggja að hún væri ekki að fela neitt. Hann bað hana einnig um að sýna sér ofan í bux­urn­ar og lét hana tosa streng­inn út. Að sögn kon­unn­ar sagði hann henni svo að hún mætti fara og bætti við að hún væri með flott brjóst. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert