Ísland eitt það eftirsóttasta á meðal Þjóðverja

Þjóðverjar horfa til Íslands árið 2021.
Þjóðverjar horfa til Íslands árið 2021. Eggert Jóhannesson

Þjóðverjar eru jákvæðir fyrir því að ferðast til Íslands á árinu. Á streymisfundi Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins í gær kom fram að Ísland er í 10. sæti af 165 áfangastöðum sem Þjóðverjar vilja heimsækja árið 2021.

Peter Strub frá Studiousus flutti erindi á fundinum. Erindið var meðal annars byggt á könnun meðal sérfræðinga í ferðaþjónustu í Þýskalandi sem og djúpri þekkingu og góðu innsæi fyrirlesara, en auk áratuga reynslu af ferðaþjónustu hefur Strub ferðast til 196 landa og spilað golf í 157 löndum. Um tvö þúsund gestir koma árlega til Íslands á vegum ferðaskrifstofu hans, Studiousus.

Samkvæmt könnun Studiousus á meðal viðskiptavina sinna, hyggja 56% á ferðalög árið 2021. Fyrirsjáanleiki er minni en áður en Þjóðverjar virðast nú bóka ferðir með styttri fyrirvara en áður og hafa einungis 20% þegar bókað ferð á árinu.

Þá er Ísland í tíunda sæti af 165 löndum, efst Norðurlandanna, sem áfangastaður sem ferðmenn vilja heimsækja innan árs. Ferðamaðurinn er líklegur til að vanda val á áfangastað og leitar eftir öryggi. Eins er talið að ferðatími muni skipta máli og er þar miðað við 4 klukkustundir að hámarki í flugvél.

Í erindinu kom fram að líklegt sé að september 2021 verði sá mánuður sem ferðalög fara rólega af stað með því sem kallast má í dag eðlilegum hætti. Strub benti á möguleg tækifæri fyrir minni fyrirtæki og sérhæfðari ferðaþjónustu eins og t.d. norðurljósaferðir með haustinu. Einnig telur Strub líklegra að fólk blandi í auknum mæli saman fjarvinnu og ferðalögum (e. workation) og dvelji lengur á sama stað.

Hægt er að sjá erindi Peter Strub í heild sinni á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert