Stjörnubarnið Stormi Webster, dóttir raunveruleikastjörnunnar Kylie Jenner, á þriggja ára afmæli í dag, 1. febrúar. Það dugði ekkert minna en ferð suður á bóginn í síðustu viku til þess að fagna afmælinu. Með í för var næstum því allt Kardashian/Jenner-slektið.
Mæðgurnar fóru í þriggja nátta frí til Turks- og Caicos-eyja að sögn heimildarmanns E!. Eyjarnar samanstanda af tveimur eyjaklösum suðaustan við Bahamaeyjar. Ferðamenn eru leyfðir á eyjunum um þessar mundir ef þeir uppfylla ákveðin skilyrði.
„Þær dvöldu í einkahúsi þar sem þær hafa oft dvalið áður,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þær dvöldu þar í þrjár nætur og áttu frábært frí á ströndinni, syntu, fóru í bátsferðir og léku sér í sandinum.“
Þær Kim Kardashian, Khloé Kardashian og Kourtney Kardashian voru einnig með í för. Þetta var sannkallað stelpufrí en dætur þeirra systranna auk bróðurdóttur Jenner voru með í för. Vinkonur Jenner voru einnig með í för en hópurinn flaug með einkaþotu Jenner. Hópurinn hélt heim á leið til Los Angeles á föstudaginn þar sem hátíðarhöld héldu áfram.