Öræfajökull á vordögum

Horf til Hvannadalshnúks.
Horf til Hvannadalshnúks. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Fjölmargir ganga á hæstu tinda Öræfajökuls á vordögum. Algengast er að ganga á jökulinn í maí þegar dagarnir eru langir og bjartir, veðrið orðið betra og oft snjór í sprungum. Jöklagöngur á hæstu tinda Öræfajökuls geta tekið 12-15 klst. og því er mikilvægt að vera í góðu líkamlegu formi og með allan réttan búnað til ferðarinnar. Yfirleitt gengur fólk á jökulinn í fylgd með fararstjórum í ferðafélögum eða ferðaþjónustufyrirtækjum. Hvannadalshnúkur, Sveinstindur, Rótarfjallshnúkur og Dyrhamar hafa í gegnum tíðina verið vinsælir tindar að ganga á. Norðar á jöklinum eru Hrútsfjallstindar og Miðfellstindur sem einnig hafa verið vinsælir tindar að ganga á.

Helsti búnaður

Helsti útbúnaður sem þarf til jöklagöngu eru skór með góðum sóla, mannbroddar, klifurbelti, ísöxi, sólgleraugu, sólaráburður, skjólgóður fatnaður og nesti.

Ferðafélag Íslands hefur lengi staðið fyrir göngum á Hvannadalshnúk um hvítasunnu og leiðangrar þessir hafa notið mikilla vinsælda og hvert ár skipta þeir hundruðum sem sigrast á landsins hæsta fjalli og sjálfum sér um leið. Fleiri ferðafélög og ferðaþjónustuaðilar bjóða einnig upp á jöklagöngur.

Gengið á Hrútfjallstinda.
Gengið á Hrútfjallstinda. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands

Ferðatilhögun

Ferðatilhögun er yfirleitt með þeim hætti að þátttakendur koma á eigin bílum í Skaftafell eða Öræfasveit en gangan hefst við bílastæðið við Sandfell snemma að morgni göngudags. Þaðan fetar hópurinn sig upp Sandfellsheiði. Við jökulrönd í um 1.100 metra hæð er hópnum skipt í minni hópa sem ganga eftir það bundnir saman í línu í klifurbeltum. Fremstur í hverri línu fer fararstjóri/fjallaleiðsögumaður. Langabrekka er andlega krefjandi en um leið tilvalin til að fara í innri íhugun og hugleiða. Þegar komið er upp á öskjubrún liggur leiðin þvert yfir öskjuna til norðurs eftir sléttri snjóbreiðu fyrir austan sprungusveim Virkisjökuls sem fellur fram úr öskjunni. Á síðari árum hafa fleiri og fleiri haldið lengra inn á sléttuna áður en leiðin er þveruð yfir á Hnúkinn. Á þessum slóðum mun jökullinn vera um 500 metra þykkur niður á öskjubotn. Í norðurbarmi öskjunnar rís svo Hvannadalshnúkur og er nokkuð bratt upp á hnúkinn sjálfan og þar reynir oftast á notkun brodda og axar og því þurfa þátttakendur að kunna notkun þessa mikilvæga öryggisbúnaðar.

Góð ráð fyrir krefjandi jöklagöngu

Hvíla skal í viku fyrir gönguna, borða og sofa vel. Best er að reyna að halda streitu í lágmarki, sofa vel og vera eins vel upplagður og hægt er. Mikilvægt er að drekka vel af vatni áður en lagt er af stað í gönguna. Einnig er mikilvægt að borða og drekka í öllum stoppum til að viðhalda orkubúskapnum. Þá er mikilvægt að bera á sig sólaráburð reglulega allan daginn og nota sólgleraugu. Gott er að setja íþróttaplástur á hæla fyrir gönguna til að forðast hælsæri. Mikilvægt er að vera ekki of mikið klæddur, einkum í upphafi göngu, og frekar klæða sig í föt ef á þarf að halda frekar en að svitna mikið í upphafi. Mikilvægt er að taka eingöngu það sem maður þarf að nota þegar pakkað er í bakpokann. Góðir fararstjórar ganga á mjög jöfnum og rólegum hraða en það skilar bestum árangri. Eins er gott að stoppa sjaldan og stutt en nýta stoppin vel til að gera allt sem þarf að gera, borða, drekka, pissa, setja á sig plástur og bera á sig sólaráburð. Algeng mistök fyrir jöklagöngur eru t.d. of mikið stress fyrir ferð og í upphafi ferðar, ekkert sofið og of lítið borðað og drukkið fyrir ferð. Bakpokinn þungur, of mikið klædd/klæddur, mikill sviti, hár hjartsláttur og hröð öndun, gengið of hratt í byrjun. Við þessar aðstæður getur öll ánægja horfið og í miðri ferð er komin upp mikil vanlíðan. Þetta er allt hægt að forðast með góðum undirbúningi. Besta þjálfunin fyrir jöklagöngur er að stunda fjallgöngur. Fjallgöngur einu sinni til tvisvar í viku 2-3 mánuði fyrir jöklaferð er almennt nægur undirbúningur samhliða almennri líkamsrækt. 
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert