Efron-bræður syntu með höfrungum

Dylan og Zac Efron njóta nú lífsins í Ástralíu.
Dylan og Zac Efron njóta nú lífsins í Ástralíu. Skjáskot/Instagram

Leikarinn Zac Efron vinnur nú að gerð 2. seríu af þáttunum Down To Earth sem Netflix framleiðir. Sem hluti af þáttunum syntu þeir Zac og bróðir hans Dylan Efron með höfrungum við strendur Suður-Ástralíu.

Zac flutti til Ástralíu á síðasta ári, rétt fyrir heimsfaraldur, og hefur ílengst þar. Í byrjun þessa árs ferðaðist svo Dylan til hans og virðast tökur vera hafnar á þáttunum. 

Í þáttunum leitar Efron að því hvernig lifa megi sjálfbæru lífi en í fyrstu seríu heimsótti hann meðal annars Ísland. Óvíst er hversu mikið hann getur ferðast um heiminn við tökur á 2. seríu en hann heimsótti líka Frakkland og Kosta Ríka í þeirri fyrstu. 

View this post on Instagram

A post shared by Zac Efron (@zacefron)

View this post on Instagram

A post shared by Dylan Efron (@dylanefron)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert