Heiðar Logi og Sara saman í þyrluflugi

Heiðar Logi Elíasson og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir.
Heiðar Logi Elíasson og Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir. Samsett mynd

Brimbrettakappinn Heiðar Logi Elíasson og cross­fit­-kon­an Ragn­heiður Sara Sig­munds­dótt­ir fóru saman í þyrluflug yfir gossvæðið í Geld­inga­dal við Fagra­dals­fjall á laugardaginn. Margir kusu að skoða eldgosið úr lofti um helgina. 

Sara og Heiðar Logi fóru í útsýnisflugið ásamt nokkrum öðrum. Með í för var meðal annars móðir Heiðars Loga. Fór vel á með hópnum en þyrlan lenti meðal annars í grennd við gosstöðvarnar. 

Sara hef­ur verið ein fremsta crossfit-kona í heimi undanfarin ár. Hún lenti í þriðja sæti á heims­leik­un­um árin 2015 og 2016. Heiðar Logi er ekki síðri íþróttamaður en hann er fyrsti og eini at­vinnu­brimbrettamaður Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert