Frumkvöðlar með hugsjónir og framtíðarsýn

Herðubreiðarlindir.
Herðubreiðarlindir. mblis/Sigurður Bogi Sævarsson

Hugmyndin að stofnun Ferðafélags Íslands (1927) kom frá Norðurlöndum. Stofnun félagsins var í takt við tíðarandann í landinu, sem einkenndist af þrá eftir sjálfstæði og framförum, breyttum lífsháttum og að þjóðin var að aðlaga sig að siðum og venjum nágrannaþjóða á sem flestum sviðum. Um leið voru fleiri landsmenn áhugasamir um að vinna að andlegum þrótti og líkamlegri hreysti.

Á árum áður var fátítt að menn ferðuðust um landið sér til skemmtunar.

Lífsbaráttan var hörð og lítið tóm gafst til slíkra ferða. Þekking almennings á landinu var mjög af skornum skammti og því varð það eitt af aðalmarkmiðum félagsins við stofnun þess að kynna landið fyrir almenningi og greiða götu ferðafólks.

Í 2. gr. laga Ferðafélags Íslands sem voru samþykkt á stofnfundinum 1927 segir m.a.: „Tilgangur fjelagsins er að stuðla að ferðalögum á Íslandi og greiða fyrir þeim“. Í 3. grein sömu laga er nánari skýring. Þar segir m.a.:

„Vekja skal áhuga landsmanna á ferðalögum um landið, sérstaklega þá landshluta, sem lítt eru kunnir almenningi en eru fagrir og sérkennilegir, að gefa út ferðalýsingar um ýmsa staði, gera uppdrætti og leiðarvísa, að beita sér fyrir byggingu sæluhúsa í óbyggðum, og síðast en ekki síst að gefa út bækur og ritlinga um náttúru landsins, atvinnuvegi, sögu og þjóðarhætti.“

Árbók félagsins hefur nú komið út í óslitinni röð í 93 ár og er flaggskipið í útgáfustarfi félagsins. Árbók FÍ er einstakur bókaflokkur um land og náttúru; ein nákvæmasta Íslandslýsing sem völ er á, skrifuð af heimamönnum og fræðimönnum sem gjörþekkja það svæði sem fjallað er um hverju sinni. Önnur verkefni í útgáfustarfi félagsins eru meðal annars gönguleiðarit, leiðarlýsingar, kortagerð og sérútgáfa af ýmsu tagi.

Þegar í upphafi var lagður grunnur að kjörsviðum félagsins, tilgangi og markmiðum. Í dag, rúmum níutíu árum síðar, er tilgangur félagsins og markmið enn þau sömu. Stærstu verkefni félagsins eru að hvetja fólk til að fara út og kynnast náttúru landsins, byggja upp gönguleiðir, skála og aðstöðu fyrir ferðamenn. Í 90 ára sögu félagsins hefur ekki verið haldinn fundur í stjórn félagsins án þess að ræða um kamar eða salernismál, uppbyggingu skálasvæða og gönguleiða. Uppbygging innviða er í dag stærsta verkefni þjóðarinnar þegar kemur að móttöku erlendra ferðamanna.

Við skála Ferðafélag Íslands í Landmannalaugum, mynd tekin upp úr …
Við skála Ferðafélag Íslands í Landmannalaugum, mynd tekin upp úr 1950. Ljósmynd/Ferðafélag Íslands
Skáli Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum.
Skáli Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum.

Náttúruvernd hefur ávallt verið á stefnuskrá félagsins. Með því að kynna og opna landið fyrir almenningi hefur verið tekið mikilvægt og stórt skref til að efla náttúruvitund fólks. Því betur sem við þekkjum náttúru landsins því vænna þykir okkur um landið og skiljum þau verðmæti sem felast í óbyggðum víðernum, landslagsheildum og öræfakyrrð; og verðum frekar tilbúin til þess að leyfa náttúrunni að njóta vafans í samkskiptum manns og náttúru. Þessi verkefni eru mikilvægari nú en nokkru sinni og stór verkefni félagsins á næstu misserum eru að efla náttúru- og umhverfisvitund þjóðarinnar og hvetja alla til að taka vistvæn spor eins og hægt er.

Öryggi, upplifun og gleði eru þau markmið sem félagið hefur sett sér fyrir ferðarekstur félagsins. Fararstjórahópur félagsins er glæsilegur þar sem fólk kemur úr öllum áttum bæði úr röðum fræðimanna innan háskólasamfélagsins, heimamenn sem gjörþekkja hvern stein og úr hópi áhugamanna sem byggt hafa upp reynslu og þekkingu; en allur þessi hópur á það sameiginlegt að elska landið og hafa yndi af ferðum og miðlar af þekkingu sinni og fróðleik, ýmist um náttúru, sögu, gróðurfar eða dýralíf. Í einni árbók félagsins á upphafsárunum segir á skemmtilegan hátt um ferðareglur; „ef þú vilt hafa gaman í ferð reyndu þá að vera hress sjálfur og sýndu úr hverju þú ert gerður ef á móti blæs.“ Um leið er það besta regla hvers ferðamanns að snúa frá ef aðstæður eru ótryggar, veðurspá vond eða óvissa um aðstæður. Við getum alltaf komið seinna; fjöllin, dalirnir og árnar fara ekki frá okkur.

Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag. Sjálfboðaliðastarf hefur í áratugi gert starf félagsins mögulegt. Sjálfboðaliðarnir og forystufólk félagsins hafa verið frumkvöðlar og hugsjónafólk. Fólk með stóra drauma og framtíðarsýn. Þannig hafa verið byggðir 40 fjallaskálar og skálasvæði, lagðir tugir gönguleiða, reistar yfir 60 göngubýr og farnar yfir 4.000 ferðir með yfir 250.000 þátttakendum. Segja má að þetta starf félagsins hafi einkennst af samfélagslegri ábyrgð í þágu almennings og þjóðarinnar.

Nú líður að sumri og ekki seinna vænna að skipuleggja ferðalög sumarsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert