Ástarhreiður Gates til leigu

Bill Gates og Ann Winblad heimsóttu strandhúsið reglulega.
Bill Gates og Ann Winblad heimsóttu strandhúsið reglulega. Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual

Eftir að greint var frá skilnaði milljarðamæringsins Bills Gates við Melindu Gates var greint frá því að hann hefði farið í langt helgarfrí með fyrrverandi kærustu sinni, Ann Winblad, á hverju ári. Gates og Winblad dvöldu oftar en ekki í litlu strandhúsi í Norður-Karólínuríki. 

Umrætt strandhús hefur verið til leigu síðan 2016. Húsið stendur nálægt bænum Corolla á Outer Banks. Í því eru fjögur svefnhergi, tvö baðherbergi og greitt aðgengi að ströndinni. 

Þrjár nætur yfir helgi kosta tæpar 340 þúsund en mikil eftirspurn hefur verið eftir húsinu í heimsfaraldrinum. Næsta lausa helgi í því er í september.

Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual
Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual
Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual
Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual
Ljósmynd/TruPlace Premium Property Visual
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert