Rússnesk lúxussnekkja lónar í Skagafirði

Snekkjan A í Skagafjarðarhöfn.
Snekkjan A í Skagafjarðarhöfn. Ljósmynd/Þorbjörg Harðardóttir

Snekkjan A, ein stærsta lúxussnekkja heims, lónar nú utan við Skagafjarðarhöfn. Um 65 manns eru um borð í snekkjunni sem er í eigu rússneska viðskiptajöfursins Andrey Melinchencko. 

Snekkjan hefur verið úti fyrir Íslandsströndum síðustu vikur og hefur hún meðal annars siglt inn í Eyjafjörð og Siglufjörð. 

Snekkj­an er tæp­ir 143 metr­ar að lengd og 25 metra breið og ná möst­ur henn­ar þrjú hátt í 100 metra hæð. Ljósmynd sem mbl.is fékk hjá Þorbjörgu Harðardóttur sýnir vel stærð snekkjunnar í samanburði við Skagfirðingabúð og höfuðstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert