Nýjar merkingar Vegrúnar vekja athygli

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra. Ljósmynd/Axel Sig

Á föstudaginn var Vegrún opnuð með pompi og prakt af umhverfisráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi. Djúpalónssandur er fyrsti staður af mörgum hér á landi þar sem merkingar úr Vegrúnu verða notaðar.

Vegrún er nýtt merkingakerfi, ætlað öllum þeim sem setja upp merkingar á ferðamannastöðum eða friðlýstum svæðum. Vegrún stendur öllum til boða jafnt opinberum aðilum sem og einkaaðilum um allt land. Vegrún var hönnuð til að samræma merkingar hér á landi, til einföldunar fyrir uppbyggingaraðila og til að bæta upplifun ferðamanna, auka gæði, samræma upplýsingagjöf og auka öryggi. Verkefnið byggir á Landsáætlun, stefnu hins opinbera í innviðauppbyggingu. Landsáætlun var samþykkt vorið 2018 og er markmið stefnunnar að bregðast við þeim mikla fjölda ferðamanna sem sækja landið á ári hverju.

Vegrún er hönnuð af hönnunarteyminu Kolofon&co en teymið var valið úr 23 teymum sem sóttu um að hanna kerfið. 

Í teyminu er fjölbreyttur hópur einstaklinga, hver með sína sérþekk­ingu sem nýtist hönnun Vegrúnar. Hönnun kerfisins hófst haustið 2020. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sá um þróun og framk­væmd verk­efn­isins og var tengi­liður milli þeirra fjöl­mörgu aðila sem komu að verk­efninu.

Aðaláhersla Kolofon&co við hönnun kerfisins var að skapa heildstætt kerfi þar sem gæði og virðing fyrir náttúru og umhverfi er höfð að leiðarljósi. Hannað var nýtt letur fyrir Vegrúnu, Stika Sans og er efniviður í skiltunum sóttur í íslenskan efnivið og innlenda framleiðslu.

Vegrúnu má nálgast á vefnum godarleidir.is. Vefurinn er hugsaður sem upphafsreitur fyrir alla þá sem huga að uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum. Þar er auk Vegrúnar handbók um náttúrustíga og fljótlega munu skipulagsleiðbeiningar um innviðauppbyggingu verða aðgengilegar á síðunni. 

Ofangreind þrjú verkefni eru afurð vinnu samstarfshóps skipuðum af umhverfis- og auðlindaráðherra til að fylgja Landsáætlun eftir í framkvæmd. Hlutverk hópsins var að efla fagþekkingu, hönnun og samræmingu við uppbyggingu innviða til verndar náttúru- og menningarsögulegum minjum á ferðamannastöðum. Í hópnum eru full­trúar frá Umhverfis- og auðlinda­ráðu­neyti, Umhverf­is­stofnun, Ferða­mála­stofu, Þjóð­garð­inum á Þing­völlum, Vatna­jök­uls­þjóð­garði, Land­græðsl­unni, Minjastofnun, Þjóð­minja­safni Íslands, Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga, Skóg­rækt­inni og Miðstöð hönn­unar og arkitektúrs.



Ljósmynd/Axel Sig
Ljósmynd/Axel Sig
Ljósmynd/Axel Sig
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert