Fyrstu miðarnir seldir á afmælisdegi forstjórans

Birgir Jónsson, forstjóri Play, er 48 ára í dag.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, er 48 ára í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fyrstu miðarnir hjá flugfélaginu Play fóru í sölu í dag en í dag er einmitt afmælisdagur forstjóra flugfélagsins, Birgis Jónssonar. Birgir fagnar 48 ára afmæli. 

Miðarnir fóru í sölu á sjötta tímanum í morgun og í tilefni dagsins bauð flugfélagið upp á þúsund frímiða.

Fyrsta flugið er til London og kostar miðinn þangað frá 6.500 krónum. Seinna í sumar verður einnig flogið til Alicante, Barcelona, Berlínar, Kaupmannahafnar, Parísar og Tenerife. 

Fyrsta flug félagsins verður 24. júní. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert