Vinsælasti garður Tenerife opnaður á ný

Vatnsrennibrautagarðurinn Siam Park opnar aftur 29. maí eftir að hafa …
Vatnsrennibrautagarðurinn Siam Park opnar aftur 29. maí eftir að hafa verið lokað í fjórtán mánuði Skjáskot/Instagram

Vatnsrennibrautagarðurinn Siam Park á Tenerife verður opnaður að nýju laugardaginn 29. maí eftir að hafa verið lokaður í 14 mánuði sökum sóttvarna. Þetta var tilkynnt á ferðamálaráðstefnunni FITUR, sem hófst í Madríd á miðvikudaginn.  

Til að byrja með verður Siam Park aðeins opinn um helgar og mælst er til þess að panta miða með góðum fyrirvara á heimasíðu vatnsrennibrautagarðsins.

Siam Park hefur verið valinn besti vatnsrennibrautagarður í heimi sjö …
Siam Park hefur verið valinn besti vatnsrennibrautagarður í heimi sjö ár í röð. Skjáskot/Instagram

Fjölmargar íslenskar fjölskyldur sem stefna á ferðalag til Tenerife í sumar hafa beðið spenntar eftir þessum fregnum og nú er ljóst að þær geta skemmt sér í þessum frábæra vatnsrennibrautagarði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert