Íslandsferð á einkaþotu á sex milljónir

Boðið verður upp á einkaþotuferð til Íslands í sumar þar …
Boðið verður upp á einkaþotuferð til Íslands í sumar þar sem íslensk náttúra er í lykilhlutverki. Rax / Ragnar Axelsson

Lúxusferðaskrifstofan TCS World Travel sérhæfir sig í ferðum um heiminn á einkaþotum. Í sumar býður ferðaskrifstofan upp á ferðapakka til Íslands að því fram kemur á vef Forbes. Ferðin kostar tæplega sex milljónir íslenskra króna. 

Ferðin til Íslands er frá 9. til 18. ágúst. Í ferðinni verður lögð áhersla á einstaka náttúru Íslands. Ævintýrin bíða á jöklum, fyrir aftan fossa og inn í eldfjöllum. Slakað verður á í náttúrulaugum og á öðrum baðstöðum. Í ferðinni verður meðal annars farið í skoðunarferðir um Suðurland og Tröllaskaga. Að lokum verður slakað á á Reatret-hóteli Bláa lónsins. Alls komast tíu í ferðina  og er allt innifalið. Ferðin kostar 49 þúsund dollara á mann miðað við tvo eða tæplega sex milljónir íslenskra króna.  

Ferðaskrifstofan býður einnig upp á ferðir innan Bandaríkjanna og til Mexíkó í sama verðflokki í sumar og haust. Þessar ferðir eru þó ekki þær dýrustu sem boðið er upp á þar sem ferðalöngum býðst meðal annars að fara á einkaþotum umhverfis hnöttinn. 

Bláa lónið.
Bláa lónið. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert