Eltir fyrrverandi um Evrópu

Jennifer Lopez og Alex Rodriguez hættu saman fyrr á árinu.
Jennifer Lopez og Alex Rodriguez hættu saman fyrr á árinu. AFP

Hollywoodstjörnurnar Jennifer Lopez og Ben Affleck sleikja sólina í Evrópu um þessar mundir. Ekki langt frá þeim er fyrrverandi unnusti Lepez, fyrrverandi hafnaboltakappinn Alex Rodriguez, sem virðist nánast elta fyrrverandi unnustu sína. 

Lopez hélt upp á afmæli sitt á frönsku rivíerunni um helgina í St. Tropez sem er þekktur fyrir að vera sumarleyfisstaður ríka og fræga fólksins. Þau Affleck ferðast um á rándýrri snekkju og héldu af stað með snekkjunni frá Mónakó til Ítalíu. Á þriðjudaginn sáust þau njóta lífsins á Capri, rétt fyrir utan Amalfi-ströndina á Ítalíu. 

Eins og vanalega er Rodriguez ekki langt undan. Hann var á heldur ódýrari snekkju við St. Tropez um helgina. Hann hélt upp á 46 ára afmæli sitt í gær, þriðjudag. Í gleðskapnum fór hann með einkaþotu með vinum sínum og fagnaði afmælinu á Ítalíu að því er fram kemur á vef Daily Mail. 

Bæði Lopez og Rodriguez eru dugleg að birta myndir af lúxuslífinu á instagramsíðum sínum. Parið sleit trúlofun sinni fyrr á árinu. 

View this post on Instagram

A post shared by Alex Rodriguez (@arod)



View this post on Instagram

A post shared by Alex Rodriguez (@arod)

View this post on Instagram

A post shared by Jennifer Lopez (@jlo)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert