Gordon, kærasta Birkis, sátt í Tyrklandi

Sophie Gordon er sátt í Tyrklandi þar sem Birkir Bjarnason …
Sophie Gordon er sátt í Tyrklandi þar sem Birkir Bjarnason starfar nú sem knattspyrnumaður. Skjáskot/Instagram

Franski tungumálakennarinn og fyrirsætan Sophie Gordon nýtur lífsins um þessar mundir í Tyrklandi. Gordon, sem er kærasta íslenska landsliðsmannsins í knattspyrnu Birkis Bjarnasonar, kann vel að meta nýja heimilið í tyrknesku borginni Adana þar sem Birkir leikur nú með félagsliðinu Adana Demirspor.

Gordon hefur birt fjölmargar myndir og myndbönd í story á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún dásamar heimili þeirra í Adana. Borgin stendur skammt frá ströndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Í borginni og útjöðrum hennar búa ríflega 1,8 milljónir manna. 

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert