Fanney og fjölskylda í fríi á Tenerife

Teitur Páll Reynisson og Fanney Ingvarsdóttir njóta lífsins á Tenerife.
Teitur Páll Reynisson og Fanney Ingvarsdóttir njóta lífsins á Tenerife. mbl

Fanney Ingvarsdóttir, áhrifavaldur og fyrrverandi fegurðardrottning, lætur fara vel um sig á paradísareyjunni Tenerife um þessar mundir. Þar nýtur hún þess í botn að sleikja sólina og skapa minningar með fjölskyldu sinni.

Þau Fanney og unnusti hennar, Teitur Páll Reynisson, eiga saman börnin Kolbrúnu Önnu og Reyni Alex. Parið hefur hingað til verið duglegt að ferðast innanlands sem utan með með fjögurra ára dóttur sinni og deilt myndum frá ferðalögunum með fylgjendum sínum á samfélagsmiðlinum Instagram. Þetta er fyrsta utanlandsferð Reynis Alex sem er tíu mánaða. Áætla má að þetta sé sú fyrsta af mörgum.

Miðað við sögu Fanneyjar á Instagram fyrr í dag naut fjölskyldan sólarinnar við sundlaugarbakka Sheraton, fimm stjörnu hótelsins á Costa Adeje ströndinni. Sannkallað draumafrí sem þessi flotta vísitölufjölskylda er að eiga saman. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert