Icelandair flýgur loks til Torontó

Icelandair hefur flug til Torontó í vikunni.
Icelandair hefur flug til Torontó í vikunni. mbl.is/Árni Sæberg

Flugfélagið Icelandair hefur hafið flug til Torontó í Kanada. Kanada opnaði landamæri sín fyrir erlendum ferðamönnum í dag. Áður voru landamærin aðeins opin fólki sem átti brýnt erindi inn í landið.

Torontó bættist við áfangastaði Icelandair fyrr á þessu ári en vegna lokana á landamærum hefur flugfélagið ekki getað boðið upp á flug þangað. 

Ferðamenn á leið til Kanada þurfa að sýna vottorð um bólusetningu og verður bólusetningu að hafa lokið að minnsta kosti fjórtán dögum áður. Samþykkt bóluefni eru öll þau sem notuð hafa verið á Íslandi, frá Pfizer, Moderna, AstraZeneca og Janssen. 

Þá þurfa ferðamenn einnig að fara í PCR-próf innan 72 tíma fyrir lendingu í Kanada eða geta sýnt vottorð um fyrri Covid-sýkingu. Hraðpróf eða antigen test eru ekki tekin gild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert