Athafnakonan Lína Birgitta Sigurðardóttir og kírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálsson skruppu til Stokkhólms um helgina. Haustferðin var stutt og var ofurparið komið til Íslands í gærkvöldi. Tími haustferða til útlanda er greinilega kominn aftur.
Lína og Guðmundur eru þekkt fyrir að koma við í dýrum merkjavörubúðum á ferðalögum sínum erlendis. Það kostar ekkert að skoða og margra milljóna merkjavörutaska fór ekki heim með Línu í þetta skiptið. Haustið er greinilega komið í sænsku höfuðborgina og voru þau Lína og Gummi klædd í notalegar yfirhafnir á milli þess sem þau settust niður og snæddu girnilegan mat.
Parið er duglegt að ferðast saman og þurfa utanlandsferðirnar ekki að vera langar eins og ferðin til Stokkhólms sýnir. Í ágúst fóru þau í fjölskylduferð til Tenerife en það var ekki eina ferðin þeirra í sumar.