Birgitta og Pattra njóta í Köben

Pattra og Birgitta Líf í kóngsins Kaupmannahöfn í vikunni.
Pattra og Birgitta Líf í kóngsins Kaupmannahöfn í vikunni. Skjáskot/Instagram

Athafnakonan Birgitta Líf Björnsdóttir og tískubloggarinn Pattra Sriyanonge njóta nú haustblíðunnar í kóngsins Kaupmannahöfn.

Vinkonurnar flugu út í byrjun vikunnar og hafa varið tíma sínum á hinum ýmsu veitingastöðum auk þess sem þær hafa kíkt í búðir. 

Afbragðs haustveður hefur verið í höfuðborginni undanfarna daga en rigning tók á móti þeim í gær morgun. 

Birgitta og Pattra kíktu meðal annars á Kóngsins nýtorg við enda Striksins í miðborginni. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert