Flugu enn og aftur á einkaþotu

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja flugu heim af Global Citizen …
Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja flugu heim af Global Citizen Live á einkaþotu. AFP

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja af Sussex flugu frá New York á austurströnd Bandaríkjanna til Los Angeles á vesturströndinni á einkaþotu. Hjónin voru stödd í New York til að koma fram á Global Citizen Live og töluðu þar fyrir aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. 

Hjónin sáust á flugvellinum í Santa Barbara á laugardagskvöld eftir að einkaþota þeirra var nýlega lent. 

Mörgum þykir það skjóta skökku við að tala fyrir aðgerðum gegn loftslagsbreytingum opinberlega á sama tíma og þau nota einkaþotur í sínu einkalífi. Hjónin hafa verið harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum og kölluð hræsnarar. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þau fljúga á einkaþotu, og ekki í fyrsta skipti sem þau hafa verið gagnrýnd fyrir það. Fyrr í haust flaug Harry meðal annars til Coloradoríkis á einkaþotu. 

Page Six

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert