Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og kokkurinn Helga Gabríela Sigurðardóttir ákváðu að lengja sumarið og fóru til Portúgal í vikunni. Hjónin giftu sig í byrjun árs og eignuðust sitt annað barn í sumar. Drengirnir þeirra tveir eru að sjálfsögðu með í fjölskyldufríinu.
Hjónin hafa birt myndir af sér á samfélagsmiðlum þar sem þau sjást sleikja sólina við sundlaugarbakkann á hinum vinsæla ferðamannastað Algarve í Portúgal. Meðalhiti á Algarve í september og október er í kringum 25 gráður, fullkomið hitastig að mati margra.
Frosti hefur stjórnað útvarpsþættinum Harmageddon í mörg ár en síðasti þátturinn fór í loftið í síðustu viku. Portúgalsferðin er án efa ágætt frí eftir annasöm ár. Fjölmiðlamaðurinn greindi frá því í viðtali á mbl.is að hann ætlaði að starfa áfram hjá Sýn, meðal annars í sjónvarpi.