Selma og Kolbeinn Tumi njóta í Köben

Kolbeinn Tumi og Selma Björnsdóttir.
Kolbeinn Tumi og Selma Björnsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ofurparið Selma Björnsdóttir söngkona og Kolbeinn Tumi Daðason fjölmiðlamaður gera vel við sig í Kaupmannahöfn þessa dagana. Það er fátt vinsælla um þessar mundir en að skreppa í nokkurra daga afslöppun til útlanda og Selma og Kolbeinn Tumi stukku á vagninn. 

Svo virðist sem haustið leiki við þau í kóngsins Kaupmannahöfn og hafa skötuhjúin verið dugleg að birta myndir úr ferðinni á samfélagsmiðlum sínum. Það er hægt að hugsa sér margt verra en að „hygge sig“ í gamla höfuðstaðnum.

Parið hnaut hvort um annað fyr­ir tveim­ur árum en í mars 2019 greindi Smart­land frá því að Selma hefði birt fyrstu mynd­ina af þeim Kol­beini Tuma á In­sta­gram. Þau fóru hvort í sína áttina í lok síðasta árs en fundu ástina aftur eftir stutt sambandsslit. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert