Íslensk vegabréf í 12. sæti

Íslenska vegabréfið er í 12. sæti lista Henley.
Íslenska vegabréfið er í 12. sæti lista Henley. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenskir ríkisborgarar geta ferðast til 180 landa án þess að þurfa til þess fyrirframfengna vegabréfsáritun. Vegabréfið íslenska situr í 12. sæti á svokallaðri vegabréfsvísitölu Henleys fyrir árið 2021. 

Listi Henley nær þó ekki til þeirra ferðatakmarkana sem nú eru í gildi vegna heimsfaraldurs. Í aðfararorðum listans segir að takmarkanir síðustu 18 mánaða hafi skapað stærsta ferðalagabil í 16 ára sögu listans. 

Vísi­tal­an, eða list­inn, held­ur utan um lönd sem borg­ar­ar kom­ast til með vega­bréf­um landa sinna án sér­stakr­ar vega­bréfs­árit­un­ar, en sem stend­ur sitja Asíu­rík­in Jap­an og Singa­púr sam­an í efsta sæti list­ans. Þeir sem ráða yfir vega­bréfi frá Jap­an eða Singa­púr kom­ast til 192 landa, án þess að þurfa sérstaka áritun. 

Þýskaland og Suður Kórea sitja saman í öðru sæti og komast ríkisborgarar landanna til 190 landa. Finnland, Ítalía, Lúxemborg og Spánn eru í því þriðja og komast til 189 landa án áritunar. 

Afganistan vermir botnsæti listans en afganskir ríkisborgarar komast til aðeins 26 landa án vegabréfsáritunar. 

Listi Henley nær til 227 áfangastaða um heiminn. Hann er uppfærður í rauntíma í gegnum árið þegar nýjar reglur um vegabréfsáritanir taka gildi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert