Njóta lífsins á Ítalíu enn og aftur

Jay-Z og Beyoncé voru á Ítalíu um helgina.
Jay-Z og Beyoncé voru á Ítalíu um helgina. Skjáskot/Instagram

Tónlistarhjónin Beyoncé og Jay-Z voru í lúxusfríi á Ítalíu um helgina. Hjónin virðast hafa gert fátt annað en að vera í lúxusfríum í Evrópu síðustu vikurnar. Beyoncé er dugleg að auglýsa ljúfa lífið þeirra á Instagram-síðu sinni og birti meðal annars myndir úr nýjustu ferðinnni. 

Hjónin fóru til Feneyja í síðustu viku og birti hún myndir af þeim hjónum sigla um borgina. Hjónin voru gestir í brúðkaupi Alexandre Arnault og Geralde Guyot hjónin giftu sig í annað sinn í Feneyjum um helgina. Arnault er háttsettur starfsmaður hjá skartgripafyrirtækinu Tiffany og sést Beyoncé reglulega með skartgripi þaðan. 

Fyrir Feneyjarferðina voru hjónin í Lundúnum. Ekki er langt síðan að hjónin voru síðast á Ítalíu en í september sleiktu þau sólina á snekkju við Ítalíu. 

View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)



View this post on Instagram

A post shared by Beyoncé (@beyonce)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert