Mikael Torfa og Elma njóta á Ibiza

Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir.
Mikael Torfason og Elma Stefanía Ágústsdóttir. Ljósmynd/Hari

Rit­höf­und­ur­inn Mika­el Torfa­son og leik­kon­an Elma Stef­an­ía Ágústs­dótt­ir njóta þess að vera í fríi á eyjunni Ibiza um þessar mundir. Hjónin, sem búa á meginlandi Evrópu, hafa birt myndir á samfélagsmiðlum sínum úr fríinu.

Vinsælt er að ferðast til spænskra eyja um þessar mundir í meiri sól og hita. Leikkonan skrifar á instagramsíðu sína að ekki sé um háannatíma að ræða og kann hún greinilega vel við það. Hitinn á Ibiza á þessum tíma er í kringum 20 gráður. 

Í sumar settu hjónin raðhúsið sitt í Breiðholtinu á sölu eftir nokkur ár erlendis. Þau hafa bæði búið í Berlín og Vín en þau fluttu aftur til Berlínar í ár eftir að hafa dvalið í Vinarborg um tíma. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert