Brynja Dan plataði fylgjendur sína

Brynja Dan Gunnarsdóttir náði að plata fylgjendur sína.
Brynja Dan Gunnarsdóttir náði að plata fylgjendur sína.

Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknar og stofnandi Extraloppunnar, plataði fylgjendur sína á Instagram upp úr skónum í vikunni. Brynja og vinkonur hennar sögðust vera á leiðinni til útlanda, þegar þær voru í raun á leiðinni upp í bústað hér á Íslandi. 

Brynja sýndi frá því á Instagram í gær hvernig hún fór að.

Hún undirbjó grínið vel, tók með sér auka klósettsetu til að taka mynd af sér við „flugvélagluggann“. Þá bjuggu þær til myrkur inni á klósetti í bústaðnum til að sýna að þær væru komnar í annað tímabelti og það væri myrkur hjá þeim. 

Vinkonurnar þóttust hafa farið til Austurríkis og lagði Brynja mikið á sig til að ná myndum sem hefðu mögulega verið teknar þar í landi. Þá skreið hún meðal annars út í gluggann á svefnloftinu í bústanum til að ná fallegri mynd. 

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert