Mörg tækifæri í ferðaþjónustu í Eyjum

Margrét og Kristján héldu fjölmennt reisugildi í Básum á laugardaginn, …
Margrét og Kristján héldu fjölmennt reisugildi í Básum á laugardaginn, einu af húsunum sem þau hafa gefið nýtt líf. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Sjávarpláss eins og Vestmannaeyjar hafa gengið í gegnum miklar breytingar á liðnum árum og áratugum. Þróunin er færri og stærri skip og ný tækni í fiskvinnslu og á fleiri sviðum kallar á minni og hagkvæmari hús. Eftir stóðu hús án hlutverks og hafa Eyjamenn breytt gömlum fiskvinnsluhúsum í íbúðir, þróunarsetur og söfn með glæsilegum árangri.

Fleiri sjá tækifærin og á þessu ári hafa hjón úr Reykjavík bætt um betur. Þau reka fyrirtækið Westman Islands Luxury Villas og hafa breytt gamla Pósthúsinu í glæsilegt íbúðahótel og Básum, gömlu veiðarfærahúsi í tvær lúxusíbúðir. Þau láta ekki þar staðar numið. Hafa þegar reist fjögur glæsileg hús með einstöku útsýni yfir eyjar og sund og fest sér níu lóðir til viðbótar. Allt ætlað ferðamönnum þar sem þau sjá mikla möguleika.

Allt byrjaði þetta með því að hjónin Margrét Skúladóttir Sigurz og Kristján Gunnar Ríkharðsson, fylgdu börnunum fjórum á fótboltamót til Eyja þar sem erfitt var að fá gistingu. Lausn fyrir fjölskylduna finna þau sumarið 2014 þegar Kristján keypti hús að Búhamri 1 og þau hjónin gerðu það upp 2018 „Við gerðum það nánast fokhelt og endurbyggðum og þar með vorum við komin með fastan samastað í Vestmannaeyjum,“ segja þau. Við sömu götu voru átta skipulagðar sjávarlóðir með einstöku útsýni til vesturs. Með Surtsey í suðri og Einidrang yst í vestri og Smáeyjar í forgrunni. „Við heilluðumst af stórkostlegu útsýninu og byrjuðum á að festa okkur þessar átta lóðir. Nú eru fjögur hús nánast tilbúin og þau erum við að leigja út,“ segir Margrét.

Baðstofan í einu húsanna við Búhamar. Með þetta útsýni þarf …
Baðstofan í einu húsanna við Búhamar. Með þetta útsýni þarf ekki listaverk á veggi. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

Sér tækifæri í öllu

En af hverju Vestmannaeyjar? „Ég sé hér endalaus tækifæri,“ segir Kristján. „Hann sér tækifæri í öllu,“ skýtur Margrét inn í. „Ég er alltaf bjartsýnn og jákvæður og finnst gaman að sjá árangur. Bara það að taka húsið Bása, sem átt hafði betri daga í gegn að utan og innan skiptir máli fyrir bæinn og gaman að taka þátt í því. Básar eru við innganginn til Vestmannaeyja og með því fyrsta sem ferðamenn sjá þegar þeir koma með Herjólfi,“ segir Kristján sem hefur fengið jákvæð viðbrögð bæði frá bæjarbúum og bæjaryfirvöldum fyrir framtakið. Má nefna að þau fengu umhverfisverfisverðlaun Vestmannaeyjabæjar og Rotary 2020 fyrir vel heppnaðar breytingar á Búhamri 1.

Þeir sem eiga börn í fótbolta vita að sumarið er endalaus eltingarleikur við fótboltamót þar sem Vestmannaeyjar eru toppurinn með TM-mótið fyrir stelpur og Orkumótið fyrir strákana. Margrét og Kristján eiga tvær stelpur og tvo stráka, voru öll í fótbolta, strákarnir þó hættir og kom hvert þeirra tvisvar á mót í Eyjum. Alltaf gaman en vandræði með gistingu. „Einu sinni fengum við húsið hjá Dagmar systur og hin skiptin leigðum við hús. Það sama heyrum við um golfarana sem vilja eiga hér huggulegt kvöld eftir hring á vellinum. Fara út að borða um kvöldið og heim daginn eftir. Það strandar á gistingu og því er farið heim með síðustu ferð Herjólfs. Húsin okkar við Búhamarinn voru í upphafi einkum hugsuð fyrir golfara enda völlurinn, sem er einn sá glæsilegasti á landinu, í göngufæri.“

„Hvorugt okkar spilar golf en við höfðum heyrt af fólki sem var að koma hingað saman í hóp og leigði sér nokkur hótelherbergi og stemningin á kvöldin flosnaði svolítið upp. Hver að fara inn á sitt herbergi og ekki aðstaða til að eiga saman notalega stund um kvöldið. Hér erum við með hús og íbúðirnar á Básum þar sem allir geta verið saman og haft það huggulegt í stórum og vel búnum stofum. Farið í pottinn og grillað,“ segir Kristján.

Margrét segir þetta eigi ekki bara við golfarana. „Það vilja allir geta slappað af og öll hönnun húsanna miðast við það.“

Ekkert til sparað í Básum og út um gluggana blasir …
Ekkert til sparað í Básum og út um gluggana blasir Heimaklettur við, innsiglingin og höfnin. Ljósmynd/Gunnar Svanberg

Útkoman glæsileg

„Maður hefur heyrt á fólki að það vanti það sem kalla má lúxus þar sem fólk vill hafa rúmt um sig og geta notið þess að vera saman eða út af fyrir sig. Sérstaklega núna vegna Covid þegar fólk er ekki mikið að fara utan. Eyðir meira innanlands sem er hið besta mál. Þessari þörf erum við að mæta,“ segir Kristján.

Pósthúsið, eitt af stærri húsum í miðbæ Vestmannaeyja var í niðurníðslu þegar þau keyptu það á síðasta ári. Framkvæmdir hófust svo í febrúar sl. og í dag er Nýja Pósthúsið tilbúið, líka Básar og fjögur hús. Básar og Pósthúsið hafa gengið í endurnýjun lífdaga í nýju hlutverki, sannkölluð bæjarprýði. „Allt gekk þetta vel og hingað erum við komin,“ segir Margrét.

Og útkoman er glæsileg, húsin, Básar og Nýja Pósthúsið standast allar kröfur þægindi og innréttingar allar mjög glæsilegar en um leið smekklegar og bjóða alla velkomna. Í allt eru þetta rúmlega 100 gistirými og munar um minna þegar kemur að stóru íþróttamótunum sem haldin eru í Vestmannaeyjum að ógleymdri Þjóðhátíðinni þegar 15.000 til 17.000 mæta til Eyja.

Margrét viðurkennir að þessi hugmynd hafi orðið töluvert stærri en lagt var upp með. „Þetta byrjaði með húsunum, næst komu Básar og svo bættist Pósthúsið einhvern veginn við líka.“ „Og Gamli spítalinn,“ bætir Kristján við. Gamli spítalinn stendur austan við Pósthúsið og á sér merka sögu. Var upphaflega spítali fyrir franska sjómenn í upphafi síðustu aldar.

Góð fjárfesting en ekki hætt

Kristján segir að fjárfestingin sé góð en þau eru ekki hætt. Um nokkurt skeið hefur verið í undirbúningi bygging 1.400 fm baðlóns með fullkominni aðstöðu á Nýja hrauninu ofan við Skansinn og gengt höfninni. Það fellur inn í hraunkantinn ofan við innsiglinguna þaðan sem horft er á Eyjafjallajökul, Heimaklett, Miðklett og Ystaklett að ógleymdri innsiglingunni sem er örugglega sú stórkostlegasta á landinu og þótt víðar væri leitað, höfnina og stóran hluta af bænum. Gestir geta líka gengið út í pott sem er frammi á brúnni sem Kristján er viss um að verði einstök upplifun. Þegar öll leyfi liggja fyrir verður hafist handa.

Margrét segir að augu þeirra fyrir Vestmannaeyjum sem ferðamannastað hafi opnast við nánari kynni. Nefnir veitingastaðina Gott, Slippinn, Tangann og Einsa kalda. Ribsafari bjóði upp á frábærar ferðir í kringum Eyjar þar sem náttúran, landslagið og lífið í sjónum heillar og Eyjatours með magnaðar ferðir um eyjuna. Gönguleiðir margar sem sjá má á www.vestmannaeyjar.is.

„Hingað geta komið göngu-, hlaupa-, hjóla- og golfhópar og Vestmannaeyjar eru nógu afskekktar til að vera virkilega í fríi. Það er eins og maður sé kominn til útlanda. Svo öll þessi söfn, Eldheimar sem standast samanburð við það besta sem sést í útlöndum og mjaldrarnir sem heilla alla.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert