Lífsneisti Frakka heillaði Hockney

David Hockney í Orangerie-listasafninu í París. Listaverkið hans Ár í …
David Hockney í Orangerie-listasafninu í París. Listaverkið hans Ár í Normandí er 91 metri að lengd. Hockney er 84 ára og enn að störfum. Nú býr hann í Frakklandi. AFP

Listamaðurinn David Hockney flutti frá Los Angeles til Normandí í Frakklandi fyrir örfáum árum. En það var lífsneisti Frakkanna sem heillaði Hockney.

„Frakkar kunna að lifa. Þeir þekkja lífsins lystisemdir,“ sagði Hockney í viðtali við The Wall Street Journal um ástæður þess að Frakkland varð fyrir valinu.

Hockney nýtur lífsins í Frakklandi og hefur landslagið í Normandí verið honum mikill innblástur.

Hockney hefur nú ratað aftur í fjölmiðla og segist vera orðinn hundleiður á heilsuæðinu sem tröllríður heiminum um þessar mundir.

Hockney fjárfesti í glasamottum sem á stóð „Bored of Wellness“ eftir listamanninn Bingo. Þegar Bingo bað um að fá að segja frá samskiptum þeirra svaraði Hockney:

„Ég er líka leiður á „heilsu“. Hugtakið finnst mér fáránlegt og of ráðríkt. Ég er enn að reykja og nýt þess mjög,“ sagði Hockney við listamanninn Bingo.

„Ég hef aldrei á ævinni farið í ræktina. Ég geng aðeins hægar og ekki jafn langt og áður en ég vinn enn alla daga. Ég er með sýningu í París. Þar er 90 metra langt verk sem spannar heilt ár í Normandí. Elskum lífið,“ segir Hockney.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert