Var óþekkur í brúðkaupsferð á Íslandi

Greg Wise
Greg Wise Skjáskot/Instagram

Breski leikarinn Greg Wise rifjar upp ferð sína til Íslands fyrir margt löngu í ferðablaði Sunday Times. Hann var í brúðkaupsferð með Emmu Thompson og maturinn og landslagið er þeim minnisstætt.

„Ég var í brúðkaupsferð með Em og hugsaði allt í einu: „Ég verð að fá mér hross!“ Við vorum í Reykjavík þar sem íslenskir smáhestar eru á matseðlinum. Ég fékk mér líka lunda. Mér fannst ég vera mjög óþekkur, að borða þennan fallega páfagauk úthafsins, en allir gera þetta. Þetta er eins og kjúklingur með fiskibragði.

Ég elskaði landslagið á Íslandi, sem líktist einna helst tunglinu. Það var ólíkt öllu sem ég hef séð á ævinni. Gufustrókar risu úr jörðinni og gróðurinn náði sjaldnast upp fyrir hné. Við ferðuðumst um í risastórum trukk og sáum allt þetta hraun. Við sáum hinn stórkostlega Gullfoss og létum líða úr okkur í Bláa lóninu. Það var bjart allan sólarhringinn og það var ótrúlegt hversu yndisleg tilfinning það var,“ segir Wise.

Wise og Thompson hafa verið gift í tæp tuttugu ár og eiga tvö börn.

Leikarahjónin Emma Thompson og Greg Wise
Leikarahjónin Emma Thompson og Greg Wise mbl.is
Emma Thompson og dóttir hennar Gaia Romilly Wise.
Emma Thompson og dóttir hennar Gaia Romilly Wise. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert