Hollywood-par í rómantískri leyniferð á Íslandi

Kate Bosworth og Justin Long.
Kate Bosworth og Justin Long. Samsett mynd

Nýjasta parið í Hollywood, Justin Long og Kate Bosworth, sást saman í Bláa lóninu í vetur. Ferðavef mbl.is barst það til eyrna að leikarinn vinalegi hefði sést með ljóshærðri Hollywoodleikkonu á ferðamannastaðnum vinsæla fyrr í vetur. 

Bosworth birti myndir af sér frá Íslandsferð á Instagram í gærkvöldi. Myndirnar virðast hafa verið teknar fyrr í vetur. 

Slúðurmiðillinn Page Six greindi frá því á dögunum að Long og Bosworth væru par. Parið kynnt­ist í tök­um á nýrri mynd í bæn­um Fayetteville í Banda­ríkj­un­um fyrr á þessu ári. Í ág­úst greindi Bosworth frá skilnaði sín­um við við leik­stjór­ann Michael Pol­ish.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert