Hæstánægðar með vetur á Íslandi

Kaley Cuoco og Emma Ross á Íslandi.
Kaley Cuoco og Emma Ross á Íslandi. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Kaley Cuoco og aðstoðarkona hennar Emma Madeline Ross virðast hafa verið hæstánægðar með Íslandsferð sína í desember sem leið. Ross birti myndir úr ferðinni á Instagram í vikunni og þakkaði Cuoco fyrir að hafa farið með sig til Íslands. 

Cuoco var hér á landi í rúma viku í desember við tökur á þáttunum Flight Attendant fyrir HBO Max. Leikkonan sjálf lofsamaði Íslands alla ferðina á Instagram og vildi helst ekki fara þegar kom að heimför. 

Aðstoðarkonan Ross virðist hafa verið jafn ánægð með ferðina en hún birti myndir af þeim á nokkrum ferðamannastöðum. Þá virðast þær hafa orðið hrifnar af flíkum frá 66° Norður en á myndunum má meðal annars sjá Cuoco klæðast sundbol frá merkinu í Sky Lagoon.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert