Tolli gefst ekki upp og ætlar að reyna aftur

Tolli Morthens og Arnar Hauksson eru í Argentínu að freista þess að klífa eitt hæsta fjall heims Acaoncagua sem er tæpir 7000 metrar og er hæsta fjall heims utan Asíu. Þeir lögðu á fjallið á sunnudag en náði ekki markmiðinu sökum veðurs en skyndileg veðrabreyting varð til þess að þeir þurftu frá að hverfa. Nú bíða þeir félagar færis í grunnbúðum fjallsins og vonast eftir vinsamlegum veðurskilyrðum í kringum helgina. 

Ferðavefur mbl.is hefur heimildir fyrir því að það sé góður andi í hópnum þrátt fyrir þetta bakslag. Tolli og Arnar eru í fylgd leiðsögumannsins Sebastian Garcia sem hefur toppað fjallið nokkrum sinnum og er þaulvanur á þessum slóðum.

Arnar Hauksson og Tolli Morthens.
Arnar Hauksson og Tolli Morthens.

Leiðangurinn er farinn til að vekja athygli á starfsemi Batahúss sem tók til starfa á síðasta ári og um leið safna áheitum fyrir starfsemina. Batahús er einstaklingsmiðað bataúrræði við enda afplánunar þar sem einstaklingum er boðin heimilisaðstaða til allt að tveggja ára eða eftir atvikum til skemmri tíma. Unnið er með einstaklingum á jafningjagrundvelli út frá hugmyndum um áfallamiðaða nálgun. Báðir eru Tolli og Arnar í stjórn Batahúss.

„Þetta verður fyrir mig, mikil bata og sáttar ganga, en við tileinkum gönguna Batahúsinu og þá er meiningin að safna pening með áheitum í Sollu-sjóðinn sem styður við starfsemi hússins,“ sagði Tolli í nýársfærslu sinni á Facebook. „Fyrir utan ýmsa eðlilega fyrirvara á svona fjallgöngu þá er óvissan gríðarleg með það hvert Covid faraldurinn fer með þetta. Falla flug niður, lokast landamæri eða veikjast menn í búðum á fjallinu og fleira í þeim dúr. Við eru staðráðnir í að leggja inn fyrir góðu ári,“ segir hann. 

Sollusjóður var stofnaður af Bata góðgerðarfélagi og er hlutverk hans að styrkja skjólstæðinga Batahúss með fjárhagslegum hætti til þess meðal annars að sækja sér sérfræðiaðstoð hjá til að mynda sálfræðingum, fíknifræðingum og öðrum fagaðilum. Jafnframt styrkir Sollusjóður nám, námskeið, ýmis konar fræðslu og tannlæknakostnað svo eitthvað sé nefnt.

Þeir sem vilja styrkja Batahúsið geta lagt peninga inn á eftirfarandi reikning: 

Kennitala félagsins: 630921-1390
Reikningsnúmer: 0537-26-7487

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert