Bjóða flóttafólki í dagsferðir

BusTravel Iceland býður upp á fríar ferðir fyrir úkraínska flóttamenn.
BusTravel Iceland býður upp á fríar ferðir fyrir úkraínska flóttamenn.

Rútufyrirtækið BusTravel Iceland ætlar í vor að bjóða flóttafólki frá Úkraínu fríar dagsferðir. Verða ferðirnar í boði á hverjum degi í apríl, maí og júní. 

Alls getur ein fjölskylda eða fjórir einstaklingar farið í ferð frá Reykjavík og notið íslenskrar náttúru. 

Í ferðunum verður hægt að skoða Suður ströndina, Gullna hringinn, Jökulsárlón, Snæfellsnes og Reykjanes, með göngu á Fagradalsfjalls eldgossvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert