Handtekinn við komuna í Los Angeles

A$AP Rocky og Rihanna voru á leið heim frá Barbados.
A$AP Rocky og Rihanna voru á leið heim frá Barbados. AFP

Rapparinn A$AP Rocky var handtekinn á LAX flugvellinum í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag. Var hann handtekinn í tengslum við skotárás sem átti sér stað á síðasta ári. Rapparinn var á leið heim frá Barbados, en hann hafði varið undanförnum dögum á eyjunni ásamt kærustu sinni, tónlistarkonunni Rihönnu. Page Six greinir frá.

Við handtökuna var hann ákærður fyrir að hafa beitt banvænu skotvopni því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni í Los Angeles sem send var út í kjölfarið. 

Skotárásin sem um ræðir átti sér stað í hinn 6. nóvember á síðasta ári og hefur A$AP Rocky hefur verið til rannsóknar undanfarið. 

Rocky og Rihanna eiga von á sínu fyrsta barni saman í vor. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert