Útivistaráhugi landsmanna í hæstu hæðum

Edith Gunnarsdóttir og Dögg Ármannsdóttir hjá Göngum og gamni
Edith Gunnarsdóttir og Dögg Ármannsdóttir hjá Göngum og gamni

Það fer ekki á milli mála að útivistaráhugi landsmanna hefur aukist til muna undanfarin ár. Við sjáum það á bílastæðunum við þessi hefðbundnu fjöll við borgina sem og auðvitað á sjálfum fjöllunum. Það eru þó ótal fleiri leiðir sem hægt er að ganga en við erum vanaföst og göngum því iðulega þær leiðir sem við þekkjum. Það getur því verið sniðugt að skrá sig í gönguhóp til að prófa nýjar leiðir og græða í leiðinni bæði fróðleik og skemmtilega göngufélaga.

Í byrjun maí eru til að mynda tveir hópar að fara af stað hjá Ferðafélagi Íslands, undir stjórn Edithar Gunnarsdóttur leiðsögukonu. Annar þeirra einbeitir sér að Þingvöllum og svæðinu þar um kring og hinn að Bláskógabyggð. Edith stýrir verkefninu FÍ Göngur og gaman og er markmiðið með því að fara skemmtilegar gönguleiðir á ákveðnum svæðum og fræðast í leiðinni um sögu þeirra. Hóparnir hafa farið um ýmis svæði, eins og Esjuna, Hengilinn, Hvalfjörð, Reykjanes og Ölfus.

Endalaus gleði á toppi Búrfells.
Endalaus gleði á toppi Búrfells.

FÍ Göngur og gaman Þingvellir

Við þekkjum flest sögu Þingvalla, þar sem Alþingi var stofnað og Þorgeir Ljósvetningagoði ákvað að Íslendingar yrðu kristin þjóð. Við lærðum líka um flekaskilin, sem sjá má meðal annars af toppi Ármannsfells. En færri vita kannski að Þingvallavatn er eitt merkilegasta vatn á norðurhveli og eitt það mest rannsakaða á alþjóðlegum vettvangi, til dæmis af dr. Pétri M. Jónassyni vatnalíffræðingi, sem segir það vera fjársjóð framtíðarinnar. Það kemur úr Langjökli og er 2.500 ára gamalt samkvæmt mælingum og tekur 20-30 ár fyrir vatnið að renna í Þingvallavatn. Það er því afar áhugavert að ganga á þessu svæði og virða það fyrir sér frá ólíkum sjónarhornum en fyrirhugaðar eru göngur á Arnarfell, Ármannsfell, Hrafnabjörg, Lágafell, Miðfell og Stóra-Reyðarbarm. Þá verður einnig sumarsólstöðuganga á Skjaldbreið og þjóðleiðin um Leggjabrjót gengin.

Hópur að ljúka göngu um Leggjabrjót með viðkomu í Brynjudal.
Hópur að ljúka göngu um Leggjabrjót með viðkomu í Brynjudal.

FÍ Göngur og gaman Bláskógabyggð

Bláskógabyggð varð til við sameiningu Þingvallahrepps, Laugardalshrepps og Biskupstungnahrepps. Þar er að finna mörg afar tignarleg fjöll sem búa yfir mörgum tröllasögum sem við trúum að sjálfsögðu. Það toppar fátt Högnhöfða í góðu skyggni því af honum sést í tólf sýslur. Á leiðinni á toppinn er farið í gegnum Brúarskörð, ein stórbrotnustu gljúfur á Íslandi. Hlöðufellið er önnur perla, formfagur móbergsstapi, sem er umkringd tignarlegum fjöllum eins og Högnhöfða, Skjaldbreið og Jarlhettum. Af toppnum er stórkostlegt útsýni á góðum degi. Fleiri skemmtileg móbergsfjöll eru á svæðinu eins og Kálfstindar sem eru hluti af löngum fjallgarði en þaðan er magnað útsýni um allt Suðurland og jökla landsins. Í þessu verkefni verður gengið á öll fyrrgreind fjöll sem og á Hrútafjöll, Kvígindisfell, Lágafell og Súlufell. Þá verður einnig farið í sumarsólstöðugöngu á Ok.

Það er óhætt að mæla með báðum þessum hópum fyrir fólk sem vill fræðast um svæði í skemmtilegum göngum en frekari upplýsingar um verkefnin er að finna á heimasíðu Ferðafélags Íslands, www.fi.is.

Kynningarfundur um báða hópana verður svo á facebook-síðu Ferðafélagsins mánudaginn 25. apríl kl. 20.

Höfundur er leiðsögumaður, ráðgjafi og jógakennari.

Sumarsólstöðuganga á Skjaldbreið.
Sumarsólstöðuganga á Skjaldbreið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert