Í hræódýrum sundfötum úr Primark á Sikiley

Helen Flanagan.
Helen Flanagan. Skjáskot/Instagram

Breska sápuóperuleikkonan Helen Flanagan skemmti sér vel í snekkjuferð um Sikiley á Ítalíu fyrr í vikunni. Á meðan Flanagan naut lífsins í góðra vinahópi um borð í snekkjunni, sem sigldi við strendur fjallaþorpsins Taormina, sleikti hún sólina og klæddist bikiníi frá fataverslunarkeðjunni Primark.

Flanagan hefur deilt myndbrotum úr ferðalaginu á Ítalíu með aðdáendum sínum í gegnum samfélagsmiðilinn Instagram síðustu daga og virtist hún vera að lifa lífinu til fulls.

Sundfötin úr Primark líta ekki sem verst út.
Sundfötin úr Primark líta ekki sem verst út. Skjáskot/Instagram

Til að mynda sást hún stinga sér til sunds í sjóinn í ódýru sundfötunum sínum sem voru fjarri því að líta út fyrir að vera verri en hver önnur. Toppurinn var fallegur í sniðinu með böndum sem komu upp frá brjóstaskoru og hnýta þurfti að aftan. Buxurnar sýndust nokkuð hefðbundnar, hvorki of háar né lágar en mynstrið á sundfötunum var bæði litríkt og sumarlegt, skreytt suðrænum ávöxtum. 

Flanagan hefur verið dugleg að ferðast upp á síðkastið. Í maímánuði fór hún í fjölskyldufrí til Dubai ásamt eiginmanni sínum, knattspyrnumanninum Scott Sinclair, og börnum þeirra þremur; Matilda, sex ára, Delilah, þriggja ára, og Charlie, eins árs. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert