Rúnta um á Lamborghini ofursnekkju

Conor McGregor og unnusta hans, Dee Devlin á ofursnekkjunni.
Conor McGregor og unnusta hans, Dee Devlin á ofursnekkjunni. Samsett mynd.

Írski bardagakappinn Conor McGregor og unnusta hans, Dee Devlin virðast ætla að nýta ofursnekkju McGregor til hins ýtrasta, en á dögunum birti Delvin myndir af parinu að sóla sig á snekkjunni.

Snekkjan er hönnuð af ítalska bíla- og snekkjuframleiðandanum Lamborghini og kostaði McGregor litlar 450 milljónir. 

McGregor og Devlin trúlofuðust árið 2020 eftir 12 ára samband, en saman eiga þau þrjú börn, Conor Jr., fimm ára, Croia, þriggja ára og Rían, eins árs. 

Í síðasta mánuði sigldi fjölskyldan um Mónakó á snekkjunni, en eins og sjá má er McGregor yfir sig hrifinn af kaupum sínum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert