Sjö vikna gömul í fyrsta ferðalaginu

Ronaldo-fjölskyldan.
Ronaldo-fjölskyldan. Skjáskot/Instagram

Ronaldo-fjölskyldan lagði af stað í sannkallað fjölskyldufrí fyrr í vikunni. Georgina Rodríguez, barnsmóður og kærasta knattspyrnumannsins knáa, Cristiano Ronaldos, birti myndir á Instagram af sjö manna fjölskyldunni um borð í einkaþotu á leiðinni í ferðalag.

Fjölskyldan virtist vera í góðu yfirlæti á meðan einkaþotan flaug henni á áfangastað enda flestir fjölskyldumeðlimir vanir því að ferðast. Þetta er þó fyrsta ferðalag yngstu dóttur þeirra Rodríguez og Ronaldos, Bellu Esmeröldu, sem er aðeins sjö vikna gömul.

Á myndunum má sjá Bellu litlu í fangi móður sinnar þar sem hún skiptist á að sjúga snuð og drekka af pela, umkringd eldri systkinum sínum. Ekki er vitað hvert ferð fjölskyldunnar var heitið.

„Líf mitt,“ skrifaði Rodríguez við myndafærsluna en móðurhlutverkið virðist eiga einstaklega vel við hana. 

Þau Ronaldo og Rodríguez kynntust fyrst árið 2016 en þau opinberuðu ástarsamband sitt ári seinna. Síðan þau fóru að stinga saman nefjum hefur heldur betur bæst í hóp þeirra en þau eiga saman fjögur börn. Ronaldo átti fyrir ellefu ára gamlan son sinn, Cristiano Jr. en hann er sagður hafa komið í heiminn með aðstoð staðgöngumóður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert