Dua Lipa í Bláa lóninu

Dua Lipa birti þessa ljósmynd af sér í Bláa lóninu.
Dua Lipa birti þessa ljósmynd af sér í Bláa lóninu. Ljósmynd/Instagram

Það fór vel um söngkonuna Dua Lipa í gær þegar hún heimsótti Bláa lónið. Hún var í tökum fyrir tískuhúsið YSL. 

Það er ekki skrýtið að Bláa lónið hafi orðið fyrir valinu því fegurðin þar er einstök á allan hátt. Svo er vatnið náttúrlega mjög gott fyrir húðina. 

Söngkonan er í lausagangi þessa dagana eftir að upp úr sambandi hennar og kærastans slitnaði. 

„Næsti kafli snýst um að vera ánægð með að vera ein með sjálfri mér,“ sagði Lipa í forsíðuviðtali Vogue. Hún er virki­lega að meina það sem hún seg­ir og hef­ur æft sig með því að fara á stefnu­mót með sjálfri sér í New York. 

View this post on Instagram

A post shared by DUA LIPA (@dualipa)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert