Falin perla á afskekktri eyju

Stórkostlegt útsýni af eyjunni Sørvær.
Stórkostlegt útsýni af eyjunni Sørvær. Ljósmynd/airbnb.com

Á afskekktri eyju í norður Noregi má finna einstakt hótel umvafið ósnortni náttúru. Eyjan Sørvær er staðsett 40 mínútum undan strönd Noregs, í aðeins 2.000 kílómetra fjarlægð frá austurströnd Grænlands. Þegar komið er á eyjuna blasa við tólf glæsibyggingar í „minimalískum“ stíl. 

Fallegt umhverfi að vetrarlagi.
Fallegt umhverfi að vetrarlagi. Ljósmynd/airbnb.com

Á eyjunni eru hvorki bílar né verslanir og er staðurinn því tilvalin til að hlaða batteríin á rólegum stað í faðmi Norður-Íshafsins.

Einstakt útsýni er af eyjunni, en þar sést yfir norska hafið, nálægar eyjar, norðurljósin, sólarupprásir og sólsetur.

Markmið arkitektúrs húsanna er að færa fólk nær náttúrunni, enda notast við mikið af náttúrulegu efni. 

Náttúruleg efni fá að njóta sín í hönnun húsanna.
Náttúruleg efni fá að njóta sín í hönnun húsanna. Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Svefnherbergi með einstakt útsýni yfir hafið.
Svefnherbergi með einstakt útsýni yfir hafið. Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert